Velkomin á heimasíðu Kórastefnu og Sumartónleika við Mývatn
Listrænn stjórnandi: Margrét Bóasdóttir, margretbo@korastefna.is margretbo@centrum.is
Kórastefna við Mývatn 2010, verður haldin dagana 3.-6.júní.
Sjá nánari kynningu og upplýsingar undir FRÉTTIR.
Á Kórastefnu 2010 verða þrjú meginverkefni.
1. Vinnusmiðja fyrir blandaða kóra. Íslensk og erlend kórverk.
Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson
2. Vinnusmiðja fyrir blandaða kóra. Barokk tónlist.
Stjórnandi: Eyþór Ingi Jónsson
3. Vinnusmiðja fyrir stúlknakóra. Bandarísk kórtónlist.
Stjórnandi: Lynnel Joy Jenkins.
2.febrúar.2010 | Margrét Bóasdóttir
Í átta ár hefur sólin bakað söngvarana, jafnt að morgni sem um miðnætti; jafnt í kaffihléum sem í baðlónum! - Sungið verður í Dimmuborgum, Jarðböðunum, Skjólbrekku, íþróttahúsinu í Reykjahlíð og hvar sem kórar koma saman! Gistiþjónustuaðilar sveitarinnar og veitingahús bjóða frábæra þjónustu og matmæður... - meira
13.nóvember.2009 | Margrét Bóasdóttir
Þeir kórar sem hug hafa á þátttöku eru beðnir að hafa samband við stjórnanda Kórastefnu fyrir janúarlok 2010. Upplýsingar um verð og gistingu liggja fyrir og nú mun Mývatnsstofa í Reykjahlíð annast bókanir gististaða. - meira
13.nóvember.2009 | Margrét Bóasdóttir
Bandaríski kórstjórnandinn, Lynnel Joy Jenkins sem heillaði alla með glæsilegri stjórnun kvennakóra á Kórastefnu 2007 hefur þegið boð um að koma og stjórna vinnusmiðju stúlknakóra á Kórastefnu 2010. Það er mikið til hlökkunarefni að fá hana til að vinna með þeim frábæru kórum sem hafa skráð sig til þátttöku. - meira